Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambands Íslands, segist hafa miklar áhyggjur af þeirri stöðu sem er uppi í kjaradeilu sjómanna og útvegsmanna þar sem tugmilljarða beri í milli hjá deiluaðilum og engin lausn virðist í sjónmáli. Þetta kom fram á þingi Sjómannasambands Íslands sem hófst í morgun.