Vopnaðs ræningja enn leitað

Vopnað rán var framið á Grundarstíg í gærkvöldi.
Vopnað rán var framið á Grundarstíg í gærkvöldi. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Sérsveit ríkislögreglustjóra og lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leita enn manns sem framdi vopnað rán skömmu fyrir miðnætti í söluturni á Grundarstíg í gærkvöldi. Er talið að hann hafi beitt skotvopni í ráninu en engan sakaði. Hann komst undan með eitthvert reiðufé en ekki er vitað nákvæmlega hversu mikið.

Lögreglan veitir ekki frekari upplýsingar um málið að svo stöddu en ránið var framið um hálftólfleytið í gærkvöldi og er talið að skotið hafi verið af byssu við ránið.

Vopnað rán við Grundarstíg

Lögreglan var með viðbúnað við verslun við Grundarstíg þar sem …
Lögreglan var með viðbúnað við verslun við Grundarstíg þar sem vopnað rán var framið í gærkvöld. Júlíus Sigurjónsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert