Læknafélags Íslands leggst gegn þingsályktunartillögu sem lögð hefur verið fram á Alþingi þess efnis að kannað verði hvort ríkið eigi að niðurgreiða „heildrænar meðferðir græðara til jafns við aðra heilbrigðisþjónustu“ eða veita þeim undanþágu frá greiðslu virðisaukaskatts.
Þetta kemur fram í ályktun frá félaginu sem samþykkt var í dag en þar segir að með samþykkt tillögunnar væri verið að „leggja að jöfnu hefðbundna, viðurkennda og gagnreynda heilbrigðisþjónustu annars vegar og þjónustu með ósannaða gagnsemi hins vegar.“ Það væri ekki ásættanlegt.
Ályktunin í heild:
„Fyrir skömmu lögðu fjórir alþingismenn fram þingsályktunartillögu um „að fela velferðarráðherra að skipa starfshóp sem kanni hvort niðurgreiða skuli heildrænar meðferðir græðara til jafns við aðra heilbrigðisþjónustu og/eða undanþiggja þær greiðslu virðisaukaskatts“ eins og það er orðað í tillögunni.
Með samþykkt tillögunnar væri Alþingi að leggja að jöfnu hefðbundna, viðurkennda og gagnreynda heilbrigðisþjónustu annars vegar og þjónustu með ósannaða gagnsemi hins vegar. Slíkt er ekki ásættanlegt.
Undanfarin ár hefur heilbrigðiskerfið þurft að búa við viðvarandi niðurskurð fjárveitinga og skerta þjónustu við sjúklinga. Allt of litlu fjármagni hefur verið varið til reksturs heilbrigðiskerfisins og íslenskir sjúklingar þurfa að reiða fram umtalsverðar upphæðir fyrir læknisþjónustu, lyf og rannsóknir auk þess sem þjónusta sálfræðinga og tannlækna er að stærstum hluta án greiðsluþátttöku ríkisins.
Stjórn Læknafélags Íslands telur ástæðulaust og rangt við óbreyttar aðstæður að stefna að breytingum í þá veru sem þingsályktunartillaga fjórmenninganna felur í sér. Læknafélagið leggst því gegn samþykkt þessarar tillögu.“