619 þúsund ferðamenn hingað til lands

Bandaríkjamenn koma margir hingað til lands að skoða norðurljósin
Bandaríkjamenn koma margir hingað til lands að skoða norðurljósin mbl.is/Sigurgeir Sigurðsson

Það sem af er ári hefur 618.901erlendur ferðamaður farið frá landinu eða 99 þúsund fleiri en á sama tímabili í fyrra en um er að ræða 19,1% aukningu milli ára.

Um 26 þúsund Íslendingar fóru utan í nóvember síðastliðnum eða svipaður fjöldi og í nóvember árið 2011. Frá áramótum hafa 336.938 Íslendingar farið utan, 5,8% fleiri en árinu áður þegar brottfarir mældust um 318 þúsund.

Rúmlega 60% aukning í nóvember

Samkvæmt talningum Ferðamálastofu fóru 36.950 erlendir ferðamenn frá landinu í nóvember síðastliðnum eða um 14 þúsund fleiri en í sama mánuði árið 2011. Um er að ræða 60,9% aukningu milli ára.

Þegar litið er til fjölda ferðamanna í nóvembermánuði á ellefu ára tímabili (2002-2012) má sjá 13,2% aukningu milli ára að jafnaði frá árinu 2002. Ferðamönnum hefur fjölgað úr 12.400 í tæplega 37 þúsund, sem er nærri þreföldun.

Bretar fjölmennastir

Af einstaka þjóðernum voru flestir ferðamenn í nóvember frá Bretlandi (27,7%) og Bandaríkjunum (17,4%). Ferðamenn frá Noregi (8,3%), Svíþjóð (5,8%), Þýskalandi (5,2%), Danmörku (4,9%) og Frakklandi (4,1%) fylgdu þar á eftir. Samtals voru þessar sjö þjóðir þrír fjórðu ferðamanna í nóvember.

Af einstaka þjóðum fjölgaði Bretum, Bandaríkjamönnum, Norðmönnum og Þjóðverjum mest milli ára í nóvember. Þannig komu um 5.100 fleiri Bretar í ár en í fyrra, 2.300 fleiri Bandaríkjamenn, um 960 fleiri  Norðmenn og 800 fleiri Þjóðverjar.

Þegar litið er til einstakra markaðssvæða má sjá helmingsaukningu frá Bretlandi, 59% aukningu frá Norður Ameríku, 50% frá Mið- og Suður Evrópu, 33% frá Norðurlöndunum og 60% frá löndum sem eru flokkuð undir „annað“.

Ferðamönnum hefur fjölgað verulega milli ára frá öllum mörkuðum það sem af er ári. Þannig hefur Bretum fjölgað um 39,5%, N-Ameríkönum um 18,%, Mið- og S-Evrópubúum um 13,5% og ferðamönnum sem eru flokkuð undið „Annað" um 24,8%. Norðurlandabúum hefur hins vegar fjölgað í minna mæli eða um 10,9%.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert