Stefnt að brottför Baldurs í síðustu ferð dagsins í dag, miðvikudag, frá Vestmannaeyjum kl. 20.30 og frá Landeyjahöfn kl. 21.30.
„Ef aðstæður þróast aftur til verri vegar verður send út tilkynning,“ segir í tilkynningu frá rekstrarstjóra Herjólfs.
Farþegar eru vinsamlegast beðnir að fylgjast með fréttum á vefsíðu Herjólfs, Facebook-síðu Herjólfs og síðu 415 í textavarpi RÚV.
Nánari upplýsingar í síma 481-2800.
Bent er á að nú getur verið hálka á vegum og þess vegna eru farþegar hvattir til að gefa sér góðan tíma í akstur til og frá Landeyjahöfn.