161 milljónir króna söfnuðust á Degi rauða nefsins í gær. Söfnunin fór fram í maraþon söfnunarþætti á Stöð 2 í gærkvöldi, með sölu á rauðum nefjum og ýmsum öðrum fjáröflunum og uppákomum.
Greint er frá þessu á visir.is.
Þar segir að rúmlega 1500 nýir heimsforeldrar hafi skráð sig til leiks hjá Unicef og séu heimsforeldrar á Íslandi nú orðnir tæplega 22 þúsund.