Geta ekki róið á hefðbundna slóð

Breytt fiskgengd á miðunum í Breiðafirði hefur dregið úr framboði á fiskmörkuðum á Snæfellsnesi.

Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag segir, að bátar hafi í haust leitað vestur á firði eða norður og austur fyrir land meðal annars vegna kvótasamsetningar. Skortur á aflaheimildum í ýsu er þegar farinn að valda verulegum vanda á svæðinu.

„Margir geta ekki lengur róið á hefðbundna slóð vegna ýsugengdar, sem þeir ekki eiga kvóta fyrir,“ segir Páll Ingólfsson, framkvæmdastjóri Fiskmarkaðar Íslands í Morgunblaðinu.

„Landslagið í þessu er gjörbreytt og við á mörkuðunum hér á Nesinu höfum farið heldur halloka og viðskiptin verið minni í haust en áður.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert