Hafnaboltakylfa og hnífur í nágrannaerjum

Lögreglan á Suðurnesjum var kölluð út vegna harðvítugra nágrannaerja um helgina. Þar áttust við tveir einstaklingar sem búa hvor á sinni hæðinni. Íbúi á neðri hæð tilkynnti lögreglu að íbúinn á efri hæðinni væri að henda rusli, sígarettustubbum og hundaskít niður í garðinn sinn. Fyrir helgi hefði hann ógnað sér með hafnaboltakylfu.

Fáeinum mínútum síðar tilkynnti íbúi efri hæðarinnar lögreglu að íbúi á neðri hæð væri að grýta steinum, mjólkurfernum og matarafgöngum í útidyrahurð og á svalir sínar.

Enn barst tilkynning upp úr hádegi í fyrradag og þá tilkynnti íbúi efri hæðar, að sá á neðri hæðinni hefði verið að ota að sér stórum eldhúshnífi sem hann væri búinn  að binda á kústskaft. Hnífamaðurinn tjáði lögreglu að búnaðinn ætlaði hann sem vörn gegn hafnaboltakylfunni. Lögregla fjarlægði hnífinn og kústskaftið og sagði mönnunum að þeir ættu að leysa ágreininginn friðsamlega, með eða án aðkomu húsfélagsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert