Geir Jón Þórisson, fyrrverandi yfirlögregluþjónn, hefur ákveðið að gefa kost á sér í 5.-6. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi.
„Eftir vandlega umhugsun og mikla hvatningu víða að hef ég tekið ákvörðun um að gefa kost á mér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi og óska eftir stuðningi í 5. til 6. sæti prófkjörsins," segir Geir Jón í fréttatilkynningu.