Ökumenn hvattir til að leggja löglega

Lögreglan segir að ástandið sé oft slæmt í Laugardal hvað …
Lögreglan segir að ástandið sé oft slæmt í Laugardal hvað stöðubrot varðar.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir að mikið sé um stöðubrot á höfuðborgarsvæðinu en um helgina hafði lögreglan afskipti af 325 ökutækjum vegna þessa.

„Eins og stundum áður var ástandið í þessum efnum ekki gott í Laugardalnum. Þar voru haldnir tónleikar á laugardag en hluti gestanna hirti ekki um að leggja löglega. Ekki er hægt að kenna um skorti á bílastæðum og má t.d. nefna að bílastæði við Laugardalsvöll voru nánast ónotuð á meðan tónleikarnir fóru fram. Kom það nokkuð á óvart enda er örstutt að ganga þaðan og í Laugardalshöll. Veðrið var líka ágætt um helgina og því hæpið að nota það sem afsökun,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni.

Lögreglan hvetur ökumenn til að leggja löglega, m.a. til að þeir komist hjá útgjöldum. Sekt vegna stöðubrots hljóðar upp á 5.000 kr. og rennur gjaldið í Bílastæðasjóð.

Sé hins vegar lagt í stæði, sem eru sérmerkt fötluðum, þarf viðkomandi að greiða enn meira, eða 10.000 kr.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert