Settur bæjarstjóri leystur frá störfum

Akranes
Akranes mbl.is/Þorvaldur Örn Kristmundsson

Bæjarstjórn Akraness ákvað á lokuðum fundi sínum í gær að Jón Pálmi Pálsson bæjarritari og settur bæjarstjóri verði tímabundið leystur frá vinnuskyldu, vikuna 17.-21. desember 2012. Ástæðan er sú að vaknað hefur grunur að um geti verið að ræða brot á starfsskyldum.

Í frétt á vef sveitarfélagsins kemur fram að nú fari í gang skoðun á málavöxtum og mun bæjarstjórn taka frekari ákvarðanir á grundvelli niðurstaðna hennar, gefi hún tilefni til.

Jafnframt ákvað bæjarstjórn að Andrés Ólafsson gegni skyldum bæjarritara þessa viku.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert