Húsleit var gerð í íbúðarhúsi á Selfossi í síðustu viku vegna gruns um landaframleiðslu. Í bílskúr fundust um 700 lítrar af gambra í gerjun og um 40 lítrar að fullbúnum landa. Tveir menn eru grunaðir um framleiðsluna. Málið er í rannsókn, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.