Feðgarnir Skúli Skúlason og Guðmundur Margeir frá Hallkelsstaðahlíð nældu sér í síld sem lá dauð í fjörunni í Kolgrafafirði í gær.
Nokkuð hefur verið um að bændur hafi náð sér í síld í fjörunni og á meðfylgjandi mynd má sjá feðgana bera síldina að hestakerru þar sem síldin var söltuð jafnharðan. Feðgarnir segjast ætla að nota síldina í fóður fyrir kindurnar á bænum.
Fulltrúar Hafrannsóknastofnunar funduðu í gær í sjávarútvegsráðuneytinu vegna málsins og munu sérfræðingar fara í dag að rannsaka aðstæður í firðinum.
Í framhaldinu verður tekin ákvörðun um hvort og þá með hvaða hætti hreinsunarstarf mun fara fram.