„Þetta þykja mér ekki góð tíðindi og finnst mér eftirsjá að Lilju Mósesdóttur af vettvangi stjórnmálanna þótt fyrirsjáanlegt væri að við yrðum ekki samherjar í komandi kosningum,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um þá ákvörðun Lilju að gefa ekki kost ár sér í næstu þingkosningum.
Ögmundur skrifar pistil á vefsvæði sitt þar sem hann rifjar upp að Lilja var í Vinstrihreyfingunni grænu framboði en sagði sig úr flokknum vegna ónægju með stefnu og framkvæmd. „Hún byggði afstöðu sína á málefnalegum forsendum og þótt leiðir skildu með okkur flokkslega vorum við oftar en ekki sámála hvað málefnin varðar.“
Hann segir Lilju vandaða í vinnubrögðum og að hana skorti hvorki þrek né þor til að takast á við erfið verkefni.