Flugeldarnir eru ekki hættulausir en mesta hættan er að fólk brenni sig þegar það umgengst þá. Hiti sjóðandi vatns er 100°C en þegar flugeldum er skotið upp geta þeir gefið frá sér hita á bilinu 800-1200°C.
Leiðbeiningarnar á flugeldum taka mið af þessari hættu og því skiptir öllu máli að fara eftir þeim í hvívetna. Flest slysin stafa af því að fólk ber sig ekki rétt að og notar ekki þann sjálfsagða hlífðarbúnað sem flugeldagleraugu og skinn- eða ullarhanskar eru, segir í leiðbeiningum frá VÍS.