Brotist inn á flugeldasölu

mbl.is/Eggert

Um klukkan 22:00 í gærkvöld fékk lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tilkynningu um innbrot í flugeldasölu í Kópavogi. Lítilræði af skoteldum var stolið. 

Á sama tíma var tilkynnt innbrot í heimahús í Grafarvoginum, þegar þetta er ritað liggja ekki fyrir upplýsingar um það hverju hefur verið stolið.

Rétt eftir miðnætti fær lögregla tilkynninu um að bifreið hafi verið stolið úr Breiðholtinu, þegar lögregla er á vettvangi að ræða við tilkynnanda kemur þjófurinn akandi á bifreiðinni  og skilar henni. Hann lagði henni í stæði, svo gekk hann rösklega í burtu frá lögreglunni og eiganda bifreiðarinnar. Lögreglumennirnir hlupu hann uppi og gistir hann nú fangageymslur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert