Ríkislögreglustjóri hefur ákveðið í samráði við lögreglustjórana á Selfossi, Suðurnesjum, höfuðborgarsvæðinu, Akranesi, Borgarfirði og Dölum, Snæfellsnesi, Vestfjörðum, Blönduósi, Sauðárkróki, Akureyri og Húsavík, að lýsa yfir hættustigi almannavarna vegna óveðurs sem spáð hefur verið á vestan- og norðanverðu landinu.
Búast má við miklu óveðri og ófærð auk þess sem stórstreymt er í fyrramálið og getur veðrið haft áhrif á sjávarhæð. Við þessar aðstæður má einnig búast við ísingu á raflínum, segir í tilkynningu frá almannavörnum.
Óvissuástandi var lýst yfir á Vestfjörðum öllum fimmtudaginn 27. desember vegna snjóflóðahættu. Í framhaldi af því var hættuástandi vegna snjóflóðahættu lýst yfir á Patreksfirði, í Hnífsdal, á Flateyri og á Ísafirði auk þess sem nokkrir bæir á Vestfjörðum hafa verið rýmdir.
Óvissuástandi vegna snjóflóðahættu var lýst yfir á Mið-Norðurlandi föstudaginn 28. desember.
Skilgreining á hættustigi almannavarna:
Ef hættumat leiðir í ljós að hætta fer vaxandi verður að grípa til tafarlausra ráðstafana til að tryggja sem best öryggi þeirra sem á svæðinu búa/dvelja. Slíkt er gert með því að efla viðbúnað neyðar- og öryggisþjónustunnar á viðkomandi svæði, ásamt því að grípa til fyrirbyggjandi aðgerða s.s. rýmingar, brottflutnings eða lokunar svæða. Einnig eru leiðbeiningar og viðvaranir einkennandi fyrir þetta stig.