Rannís tók breytingum nú um áramótin, en frá og með 1. janúar fluttust landskrifstofur menntaáætlunar Evrópusambandsins og Nordplus til Rannís. Þar með sameinast nokkrar af stærstu styrktaráætlunum Evrópusambandsins og Norrænu ráðherranefndarinnar undir einni stofnun. Markmiðið með sameiningunni er að styrkja erlent samstarf á sviði menntunar, rannsókna og nýsköpunar á Íslandi og einfalda aðkomu umsækjenda að áætlununum.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.
Verkefni og starfsfólk Menntaáætlunar ESB og Nordplus hafa nú flust frá Háskóla Íslands yfir til Rannís. Fyrst um sinn verður starfsemin á tveimur stöðum, þar sem Rannís verður áfram á Laugavegi 13 og starfsemi Menntaáætlunar (Comenius, Leonardo, Erasmus og Grundtvig) og Nordplus í Tæknigarði við Dunhaga.
Í undirbúningi er einnig að flytja umsýslu innlendra sjóða á sviði menntamála, menningar- og æskulýðsmála frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu til Rannís á árinu.