Hundrað manna ferja á Eyjafirði

Séð yfir Eyjafjörð.
Séð yfir Eyjafjörð. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Stofnað var í dag nýtt fyrirtæki á Akureyri sem ætlað er að gera út ferju til hvalaskoðunar- og útsýnisferða um Eyjafjörð næsta sumar en gert er ráð fyrir að ferjan geti flutt eitt hundrað farþega.

Fram kemur á vef sjónvarpsstöðvarinnar N4 á Akureyri að skipstjóri ferjunnar verði Bjarni Bjarnason, fyrrverandi skipstjóri á Súlunni EA, en hann sé ennfremur aðaleigandi skipsins ásamt bílaleigunni Höldi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert