Kirkjan ekki fær áður vegna „innanmeins“

Björn Valur Gíslason
Björn Valur Gíslason mbl.is/Ómar Óskarsson

Þingflokksformaður Vinstri grænna segir innanmein sem Þjóðkirkjan glímdi við á góðæristímanum kunna að skýra að hún hafi ekki verið fær um að „standa vörð um heilbrigðiskerfi landsmanna á þeim tíma eins og hún ætlar sér í dag.“

Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður Vinstri grænna, gerir að umtali í pistli á vefsvæði sínu orð biskups Íslands um að vegið hefði verið að öryggi landsmanna í heilbrigðismálum að undanförnu. Hyggst kirkjan snúa því til betri vegar með söfnun fyrir tækjakaupum á Landspítalanum.

Björn Valur segir að spítalinn hafi verið fjársveltur í góðærinu og vísar til orða forstjóra spítalans um að tækjavandi hans sé vandi fortíðar. „Í fáum málum skilur jafn rækilega á milli núverandi stjórnvalda og þeirra sem á undan komu en í heilbrigðismálum. Á meðan nóg var til af peningum töldu þáverandi stjórnvöld enga ástæðu til að láta þá renna til tækjakaupa á Landspítalanum eða rekstur hans.“

Þá fer hann yfir að framlög til tækjakaupa hafi verið aukin töluvert með fjáraukalögum 2012 og fjárlögum 2013.

Að lokum segist Björn Valur hugsanlega geta skýrt hvers vegna kirkjan ræðst í fjársöfnun um þessar mundir. „Kirkjan glímdi við ýmis innanmein á góðæristímanum sem riðu henni næstum að fullu. Það kann að skýra að hún sem stofnun hafi ekki verið fær um að standa vörð um heilbrigðiskerfi landsmanna á þeim tíma eins og hún ætlar sér í dag.

Vörnin snýst hinsvegar ekki um peninga nema að hluta til.

Sagan segir okkur að það [sic] pólitískur vilji ræður þar mestu um.“

Tæki á Landspítalanum.
Tæki á Landspítalanum. Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert