Kveða upp Icesave-dóm 28. janúar

Frá málflutningi fyrir EFTA-dómstólnum í Icesavemálinu í Lúxemborg.
Frá málflutningi fyrir EFTA-dómstólnum í Icesavemálinu í Lúxemborg. mbl.is/Sigurður Már

EFTA-dómstóllinn mun kveða upp dóm sinn í Icesave-málinu svokallaða 28. janúar nk. Þetta kemur fram á vef dómstólsins.

Málflutningur í Icesave-málinu fór fram fyrir EFTA-dómstólnum í Lúxemborg hinn 18. september síðastliðinn og stóð hann yfir í samtals fimm klukkustundir.

Lögmenn Eftirlitsstofnunar EFTA, ESA, og framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins tefldu fram röksemdum fyrir því að Ísland hefði brugðist skyldum sínum samkvæmt tilskipun um innstæðutryggingar og brotið gegn jafnræðisreglum þegar innstæður í íslenskum útibúum gömlu bankanna voru fluttar yfir í nýju bankana. Jafnframt var vísað til allsherjaryfirlýsinga ríkisstjórnar og ráðherra um ábyrgð á innstæðum, segir í tilkynningu ráðuneytisins.

Tim Ward, málflutningsmaður Íslands, andmælti harðlega öllum röksemdum og kröfum um brot Íslands. Ýtarlega var farið yfir tilurð tilskipunarinnar og sýnt fram á að innstæðutryggingakerfið rís ekki undir stórfelldu bankaáfalli, hvorki á Íslandi né annars staðar. Fjarstæðukennt sé að sjóðirnir hafi yfir fjármunum að ráða sem dugi til að greiða út meirihluta innstæðna í viðkomandi landi. Í slíkum tilvikum grípi stjórnvöld ævinlega til annarra aðgerða, t.d. með því að endurskipuleggja bankakerfið. Íslensk stjórnvöld hafi gripið til þeirra aðgerða sem tækar voru og nauðsynlegar til að koma í veg fyrir heildarhrun á Íslandi. Jafnframt hafi hagur innstæðueigenda í erlendum útibúum bankanna verið tryggður með því að þeim var veittur forgangsréttur við slit og skiptameðferð gömlu bankanna.

Ward mótmælti ásökunum um brot gegn jafnræðisreglu. Grundvallaratriði væri að enginn hefði fengið greitt úr íslenska innstæðutryggingakerfinu og því væri alls ekki um að ræða mismunun innan þess. ESA hefði að öðru leyti ekki útskýrt í hverju meint mismununarbrot hefði falist og að í öllu falli væru réttlætingaraðstæður til staðar í skilningi dómaframkvæmdar á sviði Evrópuréttar, segir í frétt ráðuneytisins.

Málflutningsmenn Noregs og Liechtensteins studdu málstað Íslands varðandi innstæðutilskipunina en Hollendingar og Bretar voru á öndverðum meiði.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert