Rangt að draga ESB á asnaeyrunum

Ragnar Arnalds, fyrrverandi fjármálaráðherra.
Ragnar Arnalds, fyrrverandi fjármálaráðherra. mbl.is

„Það heimskulegasta sem við Íslendingar getum gert er að draga ráðamenn í Brussel á asnaeyrunum árum saman, telja þeim trú um að Íslendingar séu í þann veginn að ganga í ESB og láta valdamenn í 27 aðildarríkjum atast í því að gera flókna samninga við íslensku þjóðina sem gefur svo skít í allt saman þegar þar að kemur.“

Þetta segir Ragnar Arnalds, fyrrverandi fjármálaráðherra og áhrifamaður innan Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, á vefsíðunni Vinstrivaktin í dag. Hann segir að reynslan sýni að þjóð sem hafni formlega samningi um inngöngu í Evrópusambandið njóti lítils skilnings í Brussel næstu ár á eftir og vísar þar í reynslu Norðmanna sem tvisvar hafa hafnað samningi um inngöngu í sambandið.

„Það er því mjög til tjóns fyrir málstað Íslendinga til frambúðar að reynt sé undir forystu Samfylkingarinnar að troða Íslendingum inn í ESB með góðu eða illu, þótt vitað sé að þjóðin vill ekki ganga þar inn,“ segir Ragnar og bætir því við að Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, hafi nú fengið heilt kjörtímabil til þess að sýna hvað sé í boði af hálfu Evrópusambandsins. Fyrir liggi hins vegar að hagsmunum Íslendinga í sjávarútvegs- og landbúnaðarmálum yrði eki borgið innan sambandsins.

„Vitneskjan um þessar staðreyndir nægir. Við eigum því að draga okkur út úr aðildarviðræðunum hávaðalaust og láta þar við sitja. Því getur VG ráðið. Forystumenn VG verða nú að taka af skarið, enda bætist það ofan á allt annað hjá þeim að framtíð flokksins, framtíð VG, er bersýnilega í húfi,“ segir hann ennfremur.

Grein Ragnars Arnalds

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert