Agnes er Vestfirðingur ársins 2012

Agnes M. Sigurðardóttir.
Agnes M. Sigurðardóttir. mbl.is/Golli

Vestfirðingur ársins 2012 samkvæmt vali lesenda fréttavefjarins bb.is er Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands.

Agnes, sem fæddist á Ísafirði, var um árabil sóknarprestur í Bolungarvík eða allt þar til hún tók við embætti biskups Íslands á síðasta ári, fyrst íslenskra kvenna. Agnes fékk 30% greiddra atkvæða en vel á fjórða hundrað atkvæði bárust. Í öðru sæti með 10% greiddra atkvæða varð Finnbogi Örn Rúnarsson, 11 ára drengur sem búsettur er í Bolungarvík.

Finnbogi Örn fæddist með Downs-heilkenni og hjartagalla. Þegar hann var þriggja mánaða gekkst hann undir hjartaaðgerð í London og í apríl á síðasta ári gekkst hann undir stóra hjartaaðgerð í Lundi í Svíþjóð þar sem hjartaloka var lagfærð og var framtíðin björt. Stóra áfallið kom síðan 1. desember síðastliðinn þegar Finnbogi Örn fékk heilablóðfall með þeim afleiðingum að hægri hlið líkamans lamaðist auk þess sem hann missti málið. Finnbogi Örn liggur nú á Barnaspítala Hringsins. Hann hefur náð ótrúlegum styrk og fengið málið aftur.

Í þriðja sæti varð Sigurður Ólafsson á Ísafirði, oftast kallaður Bíi, með 8% greiddra atkvæða. Sigurður hefur í fjölda ára unnið mikið sjálfboðastarf fyrir Krabbameinsfélagið Sigurvon og hefur verið formaður félagsins um árabil. Í fjórða sæti varð Eyþór Jóvinsson, kaupmaður í Vestfirzku verzluninni á Ísafirði, með 5% greiddra atkvæða og í fimmta sæti urðu björgunarsveitirnar á Vestfjörðum með 4% greiddra atkvæða.

Áður hafa fengið nafnbótina Vestfirðingur ársins þau Örn Elías Guðmundsson, Mugison (2011), Benedikt Sigurðsson (2010), Halldór Gunnar Pálsson (2009), Egill Kristjánsson (2008), Arna Sigríður Albertsdóttir (2007), Sunneva Sigurðardóttir (2006), Sigríður Guðjónsdóttir (2005), Örn Elías Guðmundsson, Mugison (2004), Magnús Guðmundsson (2003), Hlynur Snorrason (2002) og Guðmundur Halldórsson (2001).

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert