Icelandair hefur ákveðið að kæra íslenskan karlmann á fimmtugsaldri sem binda þurfti niður í flugvél Icelandair til New York í síðustu viku. Var ákvörðun um að kæra manninn til lögreglu tekin í morgun, að sögn Guðjóns Arngrímssonar, upplýsingarfulltrúa Icelandair.
Að sögn Guðjóns er það í samræmi við það sem félagið hefur gert þegar sambærileg mál hafa komið upp í flugi á vegum félagsins.
Maðurinn var útskrifaður af sjúkrahúsi í Queens í New York um helgina og er nú frjáls ferða sinna.