Átta einstaklingar skiluðu inn framboði í forvali Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Norðvesturkjördæmi. Meðal þeirra er Lilja Rafney Magnúsdóttir þingmaður en hún stefnir á fyrsta sæti listans. Síðasti dagur til að póstleggja atkvæði í forvalinu er þann 28. janúar og verða atkvæði talin þann 2. febrúar.
<br/><br/>Finnbogi Rögnvaldsson, Borgarnesi, 5.-6. sæti.
Lárus Ástmar Hannesson, Stykkishólmi 2. sætið
Lilja Rafney Magnúsdóttir, Súgandafirði, 1. sæti
Matthías Sævar Lýðsson, Húsavík á Ströndum, 3.-4. sæti.
Ragnar Frank Kristjánsson, Hvanneyri, 3.-6. sæti.
Reynir Eyvindarsson, Akranesi, 3.-6. sæti.
Trausti Sveinsson, Bjarnargili í Fljótum, 1.-6. sæti.
Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir, Kleppjárnsreykjum, 3.-6. sæti.