Dagur B. Eggertsson mun ekki gegna embætti varaformanns Samfylkingarinnar eftir landsfund flokksins eftir þrjár vikur. Hann sækist ekki eftir endurkjöri og hyggst einbeita sér að borgarmálum. Frá þessu var greint í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins.
Haft var eftir degi að miklar annir hafi fylgt því að vera varaformaður, verkefnin verið stór; á vettvangi Samfylkingarinnar, ríkisstjórnar og í borginni.