Sundkappinn Jón Margeir Sverrisson var í dag útnefndur íþróttamaður Reykjavíkur 2012. Borgarstjórinn, Jón Gnarr, veitti Jóni Margeiri verðlaunin við hátíðlega athöfn í Höfða í. Jón Margeir fékk farandbikar sem gefinn er af Reykjavíkurborg ásamt eignarbikar og 200.000 króna styrk frá Íþróttabandalagi Reykjavíkur.
Jón Margeir varð Ólympíumeistari í 200m skriðsundi á Ólympíumótinu í London í sumar. Jón setti einnig nýtt og glæsilegt heimsmet í þessu sama sundi. Jón setti þrjú heimsmet á árinu auk þess að vinna til margra verðlauna í hinum ýmsu sundgreinum á mótum erlendis. Hann er einnig margfaldur Íslandsmeistari árið 2012.
Tíu aðrir afreksmenn fengu einnig viðurkenningu fyrir árangur sinn á árinu 2012 í Höfða í dag sem afhentar voru af formanni Íþróttabandalags Reykjavíkur, Ingvari Sverrissyni. Íþróttamennirnir eru þau:
* Aníta Hinriksdóttir, Íþróttafélagi Reykjavíkur
* Anton Sveinn McKee, Sundfélaginu Ægi
* Ásdís Hjálmsdóttir, Glímufélaginu Ármanni
* Ásgeir Sigurgeirsson, Skotfélagi Reykjavíkur
* Einar Daði Lárusson, Íþróttafélagi Reykjavíkur
* Eygló Ósk Gústafsdóttir, Sundfélaginu Ægi
* Guðný Jenný Ásmundsdóttir, Knattspyrnufélaginu Val
* Haraldur Franklín Magnús, Golfklúbbi Reykjavíkur
* María Guðsteinsdóttir, Glímufélaginu Ármanni
* Þormóður Jónsson, Júdófélagi Reykjavíkur