„Smánarblettur á samfélaginu“

Agnes M. Sigurðardóttir.
Agnes M. Sigurðardóttir. mbl.is/Golli

Biskup Íslands segir það þyngra en tárum taki að alvarleg kynferðisbrot barnaníðingsins Karls Vignis Þorsteinssonar hafi viðgengist og það um áratugaskeið. Biskup segir kirkjuna kappkosta að vera öruggt samfélag, gefandi og kærleiksríkt.

„Af þessu tilefni vil ég árétta að prestar og forysta safnaða þjóðkirkjunnar fylgi varúðarreglum eins og þær eru fram settar í starfsreglum og siðareglum Þjóðkirkjunnar. Þess hefur ekki verið gætt af hálfu Áskirkju varðandi þann einstakling er um ræðir, eins og þegar er fram komið af hennar hálfu,“ segir Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, í yfirlýsingu.

Agnes bendir á að kirkjan hafi mótað verkferla og farvegi í forvarnaskyni. „Hún hefur einnig skýrar vinnureglur um það hvernig við skuli brugðist komi slík mál upp. [...] Hugur minn og hjarta eru með þeim sem hefur verið brotið á. Kynferðisbrot eiga aldrei að líðast og eru smánarblettur á samfélaginu.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert