Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir að þegar kemur að myndun nýrrar ríkisstjórnar skipti afstaða til ESB-ferlisins einna mestu máli hvað Samfylkinguna varðar. Útilokað sé að Samfylkingin fari í ríkisstjórnarsamstarf með flokki sem vilji að viðræðunum verði slitið.