Viðræður við ESB á ís

ESB
ESB AFP

Ekki verður um frekari vinnu að ræða við mótun samningsafstöðu Íslands í þeim fjórum köflum sem enn eru ófrágengnir í aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið. Þetta var samþykkt á ríkisstjórnarfundi í morgun. Meðal annars er þar um að ræða sjávarútvegskaflann.

Í tilkynningu frá ríkisstjórninni kemur fram að Samfylkingin og Vinstrihreyfinging-grænt framboð hafi komist að samkomulagi um breytta meðferð aðildarviðræðna við Evrópusambandið fram yfir komandi Alþingiskosningar.

Á fundi ráðherranefndar um Evrópumál í morgun og ríkisstjórnarfundi sem haldinn var í kjölfarið var kynnt og samþykkt svohljóðandi minnisblað:
„Samkomulag stjórnarflokkanna um breytta meðferð ESB-viðræðna fram yfir kosningar
Minnisblað

Frá: Ráðherranefnd um Evrópumál
Til: Ríkisstjórnar


- Í samræmi við ályktun Alþingis vorið 2009 sótti Ísland um aðild að Evrópusambandinu á þeim forsendum að þjóðin fengi að eiga lokaorðið í þjóðaratkvæðagreiðslu.
- Stjórnarflokkarnir hafa starfað að fullu í samræmi við samstarfsyfirlýsingu sína og ákvörðun Alþingisog álit meiri hluta utanríkismálanefndar hefur legið til grundvallar samningaferlinu.
- Nú er ljóst að viðræðurnar leiða ekki til samnings á yfirstandandi kjörtímabili.
- Af þeim 33 málaflokkum sem samið er um hefur Ísland afhent 29 samningsafstöður, viðræður eru hafnar um 27 og lokið um 11.
- Tafir hafa orðið á að viðræður gætu hafist um mikilvæga kafla svo sem sjávarútvegsmál þar sem Evrópusambandið hefur dregið að ljúka sinni rýniskýrslu um málið mánuðum saman. Einnig hefur dregist að ljúka samningsafstöðu Íslands í landbúnaði.
- Komandi mánuðir markast af undirbúningi undir alþingiskosningar.
Í þessu ljósi þjónar það best hagsmunum Íslands að búið sé um málið með ábyrgum hætti fram að kosningum. Því er eftirfarandi lagt til:
a)    Ekki verður um frekari vinnu að ræða við mótun samningsafstöðu Íslands í þeim fjórum köflum sem enn eru ófrágengnir. Þetta eru sjávarútvegskaflinn (13), kaflar 3 og 4 um þjónustuviðskipti og staðfesturétt sem hafa tengingu yfir í sjávarútvegskaflana og landbúnaðarkaflinn (11).
b)    Ekki verður lögð áhersla á sérstaka ríkjaráðstefnu á útmánuðum og þeir tveir kaflar sem samningsafstaða hefur verið lögð fram í en ekki opnaðir bíða þá í óbreyttri stöðu.
c)     Varðandi þá 16 kafla sem nú standa opnir munu samninganefnd Íslands og sérfræðingar halda áfram uppi samskiptum við ESB um þá, án þess þó að kallað verði eftir frekari ákvörðunum framkvæmdar- eða löggjafarvalds.
d)    Utanríkisráðherra mun upplýsa framkvæmdastjórn ESB og formennskuríkið Írland með viðeigandi hætti um þennan umbúnað viðræðnanna.

Samkomulag flokkanna í upphafi kjörtímabilsins byggir á þeirri lýðræðislegu nálgun að það eigi að vera þjóðin sjálf sem tekur ákvarðanir í þessum efnum. Það er hvors flokks um sig að móta stefnu sína og málflutning þar um og hvað varðar framhald málsins, samanber það sem segir í samstarfsyfirlýsingu flokkanna að þeir virða ólíka grundvallarafstöðu hvors flokks og hafa fullt frelsi til málflutnings og baráttu á þeim grunni.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert