Vilja að ráðherra setji landsliðslög

Tæplega 1.500 hafa sett nafn sitt á undirskriftarlista á netinu þar sem skorað er á mennta- og menningarmálaráðherra að beita sér fyrir setningu laga um sjónvarpsútsendingar frá stórviðburðum þar sem landslið Íslands koma við sögu.

Nánar tiltekið eigi þetta við viðburði eins og Ólympíuleikana, heimsmeistaramót og Evrópumeistaramót. Lögin eigi að kveða á um að skylt sé að sýna viðburðina í opinni dagskrá sjónvarpsstöðva, sé viðburðinum á annað borð sjónvarpað hérlendis.

„Þessi aðgerð er forsenda  þess að við sem þjóð getum sameinast um landslið okkar burtséð frá  búsetu og fjárhagslegri stöðu,“ segir á síðunni sem Guðbjörg Harpa Ingimundardóttir stofnaði.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert