Sjö umferðarslys urðu á höfuðborgarsvæðinu í vikunni sem leið. Að sögn lögreglu er talið að þrjú þeirra megi rekja til ógætilegs aksturs í hálku, þar sem ökumaður ók of hratt miðað við aðstæður.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðin segir því óhætt að benda ökumönnum á að þegar hálka er á vegum eða gera megi ráð fyrir slíkum aðstæðum, ber ökumönnum að aka hægar en ella og gæta ýtrustu varkárni til að koma í veg fyrir meiðsl, hvort heldur er á þeim sjálfum eða öðrum.
Ljóst er, miðað við upplýsingar lögreglu, að hægt hefði verið að koma í veg fyrir öll þau sjö slys sem urðu í síðustu viku, með meiri aðgæslu ökumanna og tillitssemi gagnvart öðrum vegfarendum.
Samkvæmt tölum lögreglu varð að meðaltali eitt slys í umferðinni, þar sem slys urðu á vegfarendum, á degi hverjum árið 2012. Lögregla segir að óhöppin megi oftar en ekki rekja til þess að ökumenn sýni ekki nægilega aðgæslu í umferðinni. Árið 2013 er markmiðið að fækka umferðarslysum á höfuðborgarsvæðinu um helming frá því sem var í fyrra og í því skyni ætlar lögregla vikulega að kynna upplýsingar um fjölda slysa.
Umferðarslys síðustu viku urðu með eftirfarandi hætti:
Mánudaginn 7. jan. um klukkan 15 var bifreið ekið á ljósastaur í Stekkjarbakka við Álfabakka. Tveir voru í bifreiðinni og var farþegi fluttur á slysadeild til aðhlynningar, talsvert slasaður. Talið er að rekja megi orsök slyssins til þreytu ökumanns, en grunur leikur á að hann hafi sofnað við akstur.
Fimmtudaginn 10. jan. um klukkan 15 valt vörubifreið með saltfarm í hringtorgi á Reykjanesbraut við Lækjargötu. Ökumaður var einn í bifreiðinni. Hann leitaði aðhlynningar á slysadeild. Orsök slyssins er rakin til of hraðs aksturs í hringtorginu.
Fimmtudaginn 10. jan. um klukkan 17 var ekið á gangandi vegfaranda á gangbraut á Kleppsmýrarvegi við Súðarvog. Hinn gangandi leitaði aðhlynningar á slysadeild. Ástæða slyssins er rakin til óaðgæslu ökumanns við vegamót auk þess sem gangbrautarréttur var ekki virtur.
Laugardaginn 12. jan. um klukkan 11 missti ökumaður stjórn á bifreið sinni á Reykjanesbraut vestan við Straumsvík með þeim afleiðingum að hún valt og endaði utan vegar. Þrír voru í bifreiðinni og var einn fluttur á slysadeild til aðhlynningar. Orsök slyssins er rakin til þess að ökumaður hafi ekið of hratt í hálku.
Laugardaginn 12. jan. um klukkan 17 missti ökumaður stjórn á bifreið sinni á Hvalfjarðarvegi með þeim afleiðingum að hún valt og endaði utan vegar. Ökumaður var einn í bifreiðinni og fluttur á slysadeild til aðhlynningar. Orsök slyssins er rakin til þess að ökumaður hafi ekið of hratt í hálku.
Sunnudaginn 13. jan. um klukkan 15 lentu tvær bifreiðar saman á ljósastýrðum gatnamótum Snorrabrautar og Sæbrautar. Ökumaður annarrar bifreiðarinnar var fluttur á slysadeild til aðhlynningar og farþegi í hinni. Orsök slyssins er rakin til aksturs á móti rauðu ljósi.
Sunnudaginn 13. jan. um klukkan 17 missti ökumaður stjórn á bifreið sinni á Kringlumýrarbraut í Fossvogi. Hann var fluttur á slysadeild til aðhlynningar. Orsök slyssins er rakin til þess að ökumaður hafi ekið of hratt í hálku.