Alþjóðlegur Snjódagur verður haldin hátíðlegur á skíðasvæði Ísafjarðarbæjar á sunnudag líkt og víða um heim.
Samkvæmt fréttatilkynningu verður ókeypis að fara á skíði og veittur 25% afsláttur á skíðaleigu. Þjálfarar og æfingalið Skíðafélagsins ætla að bjóða þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref ókeypis aðstoð.