Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, hefur sent Vilborgu Örnu Gissurardóttur suðurpólsfara heillaóskir.
„Við Dorrit óskum þér til hamingju með einstakt afrek, árangur einbeitni, kjarks og þjálfunar. Íslendingar samgleðjast þér innilega; erum stolt og glöð.
Þú ert ungu fólki frábær fyrirmynd og ferð þín vekur okkur öll vonandi til aukinnar vitundar um mikilvægi heimskautanna fyrir loftslag jarðar og framtíðarheill mannkyns,“ segir í heillaóskum Ólafs Ragnars til Vilborgar.