Átta formenn aðildarfélaga Samfylkingar lýsa yfir stuðningi við Árna Pál Árnason í könnun sem Morgunblaðið gerði meðal forystumanna í 22 aðildarfélögum af alls 43. Sá níundi sagði Árna Pál vera að sækja í sig veðrið.
Til samanburðar sögðust tveir formenn aðildarfélaga styðja Guðbjart Hannesson í embætti formanns Samfylkingar. Alls var rætt við 23 trúnaðarmenn í flokknum og segjast 12 vera óákveðnir eða ekki vilja upplýsa hvorn þeir styðji.
Í fréttaskýringu og umfjöllun um formannskjörið í Morgunblaðinu í dag kemur fram, að formenn félaganna telja, að Evrópumálin verði efst á baugi Samfylkingar í kosningabaráttunni vegna alþingiskosninganna.