Benedikt Eyjólfssyni hjá Bílabúð Benna að það hljóti að vera einsdæmi í réttarfarssögu lýðræðisríki að unnt sé að krefjast allt að sex ára fangelsis fyrir að ársreikningum hafi ekki verið skilað til opinberrar birtingar á réttum tíma.
Líkt og fram kom á mbl.is í gær hefur Benedikt verið ákærður fyrir að hafa ekki skilað ársreikningum fyrirtækisins frá árinu 2006 til ársins 2010 á tilsettum tíma. Þar kemur fram að viðurlög fyrir þau brot sem Benedikt er ákærður fyrir eru allt að sex ára fangelsi. Benedikt hefur skilað ársreikningum Bílabúðar Benna en ákærar lýtur að því að þeim hafi ekki verið skilað á tilsettum tíma.
Benedikt segir að ef þetta teljist til verðugra viðfangsefna hjá embætti sérstaks saksóknara, þá megi álykta sem svo að Ísland sé því sem næst glæpafrítt.
„Vafalítið verður nóg að gera hjá sérstökum saksóknara á næstunni, því samkvæmt fréttum skila tugþúsundir fyrirtækja ársreikningum ekki á réttum tíma – og sum aldrei.
Litlum og meðalstórum fyrirtækjum er heimilt að skila samandregnum ársreikningum, en samkvæmt viðmiðum ársreikningaskrár telst Bílabúð Benna stórfyrirtæki. Þar er miðað við eignir upp á 230 millj. kr. og nettó rekstrartekjur upp á 460 millj. kr.
Þetta eru allt aðrar upphæðir en koma fram í Evrópureglum um skil ársreikninga. Þar teljast fyrirtæki ekki stór – og þar með skyldug til að skila ítarlegum ársreikningi – fyrr en eignir nema 17,5 milljónum evra og rekstrartekjur 35 milljónir evra. Þetta eru 3 milljarðar króna annars vegar og 6 milljarðar hins vegar.
Bílabúð Benna hefur skilað samandregnum ársreikningi til ársreikningaskrár. Í honum koma fram grunnupplýsingar um afkomu fyrirtækisins, en litlar upplýsingar sem geta komið samkeppnisaðilum fyrirtækisins að gagni. Bílabúð Benna telur sér ekki skylt að skila ítarlegum ársreikningi til ársreikningaskrár, enda er vitað að þeir einu sem nálgast slíkar upplýsingar eru samkeppnisaðilar.
Bílabúð Benna skilar ítarlegum ársreikningi með skattframtalinu, enda hefur fyrirtækið að sjálfsögðu ekkert að fela fyrir skattyfirvöldum. Rekstur Bílabúð Benna gengið ágætlega í þau 38 ár sem liðin eru frá stofnun án afskrifta fjármálastofnana. Bílabúð Benna er einkafyrirtæki í harðri samkeppni við fyrirtæki sem mörg hver hafa verið undir verndarvæng banka árum saman og fengið bullandi afskriftir. Það er ekki skráð á hlutabréfa markað og lítur á ársreikninga félagsins sem trúnaðargögn og að kröfur um opinbera birtingu þeirra brjóti gegn stjórnaskrár vernduðum eignarrétti félagsins. Engin rök mæla með því að Bílabúð Benna, sem alla tíð hefur staðið á eigin fótum, veiti óviðkomandi aðilum aðgang að upplýsingum sem geta nýst þeim í samkeppni.
Samandreginn ársreikningur er ágætis vörn lítilla og meðalstórra fyrirtækja á borð við Bílabúð Benna gegn yfirgangi stórra samkeppnisaðila. Ársreikningaskrá neitar hins vegar að viðurkenna móttöku þessa samandregna ársreiknings. Ríkisskattstjóri, fyrir hönd ársreikningaskrár, kærði Bílabúð Benna til skattrannsóknarstjóra, sem síðan kærði til sérstaks saksóknara sýnir hvað málið er galið. Ákæra sérstaks saksóknara heldur ekki vatni,“ segir Benedikt.