Hlutur kvennastétta verður réttur

Hjúkrunarfræðingar hafa lengi krafist betri kjara, en launamunur karla -og …
Hjúkrunarfræðingar hafa lengi krafist betri kjara, en launamunur karla -og kvennahópa er hvað mestur hjá stofnunum innan heilbrigðiskerfisins. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi í morgun tillögu Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra og Katrínar Júlíusdóttur fjármála- og efnahagsráðherra um að ráðast nú þegar í jafnlaunaátak með aðgerðum sem beinast að því að rétta hlut starfsstétta þar sem konur eru í miklum meirihluta.  

Í frétt á vef velferðarráðuneytinu segir að eftir hægfara þróun í átt að auknu launajafnrétti kynja hér á landi hafi á síðustu misserum orðið afturkippur í jafnlaunaþróun meðal opinberra starfsmanna.

Mestur munur hjá stofnunum heilbrigðiskerfisins

Fjármála- og efnahagsráðuneytið vinnur að gerð greiningar á jafnlaunaþróun meðal ríkisstarfsmanna. Kynbundið starfsval er áberandi í ýmsum greinum og var í fyrsta áfanga skoðaður kynbundinn launamunur þar sem annað kynið er í meirihluta. Niðurstöðurnar sýna að launamunur karla- og kvennahópa er hvað mestur hjá stofnunum innan heilbrigðiskerfisins og þar eru jafnframt fjölmennustu starfshóparnir sem um ræðir.

Samkvæmt samþykkt ríkisstjórnarinnar frá í morgun munu aðgerðir sem nú verður ráðist í beinast að stofnunum innan heilbrigðiskerfisins. Einkum verður horft til starfshópa þar sem 2/3 hluti starfsmanna eða meira eru konur.

Leiðréttingar verða útfærðar innan hverrar stofnunar

Ef ákveðið verður að ráðast í aðgerðir til að leiðrétta laun þótt kjarasamningar séu enn í gildi þarf að útfæra þær innan hverrar stofnunar fyrir sig. Verður það gert annað hvort með tímabundnum aðgerðum fram að endurnýjun kjarasamninga eða á grundvelli stofnanasamnings líkt og gert var við leiðréttingu á kynbundnum launamun innan Stjórnarráðsins í október síðastliðnum.

Velferðarráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra hefur verið falið að útfæra nánar tillögur að framangreindum aðgerðum til að draga úr kynbundnum launamun og jafnframt að gera tillögu um fjármögnun rúmist þær ekki innan fjárhagsramma viðkomandi stofnana. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert