Skuldir Orkuveitu Reykjavíkur hafa gróft á litið hækkað um 7,3 milljarða síðan í lok september vegna veikingar krónu.
Skuldir í evrum hafa hækkað mest eða úr 80,4 milljörðum í 86 milljarða.
Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag segir Haraldur Flosi Tryggvason, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur, hina neikvæðu gengisþróun „saxa á eiginfjárstöðu“ Orkuveitunnar.