Það er ætlun stjórnvalda að ljúka við að endurmeta kvennastörf hjá ríkinu áður en kjarasamningar renna út í haust. Þetta kom fram í máli Katrínar Júlíusdóttur fjármálaráðherra á Alþingi í morgun. Rætt var um kynbundinn launamun í sérstökum umræðum á Alþingi í morgun.
Málshefjandi var Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Hún vísaði til þess að kannanir sýndu að ríkisstjórnin hefði lítið gert til að berjast gegn kynbundnum launamun á þessu kjörtímabili.
Unnur segir ekki nóg að tala hátt um breytingar, sýna þurfi viljann í verki. Hún nefndi sem dæmi að í Reykjanesbæ hafi náðst gríðarlegur árangur í að útrýma kynbundum launamun. Það sýni að verkefnið sé alls ekki ógerlegt. Hún kallaði eftir skýrum áætlunum, verklagi og tímasetningum frá stjórnvöldum í baráttunni við kynbundinn launamun.
Katrín tók undir orð Unnar um nauðsyn þess að útrýma kynbundnum launamun sem hún nefndi meinsemd í íslensku samfélagi. Nefndi Katrín viljayfirlýsingu stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins um útrýmingu kynbundins launamunar. Á grundvelli yfirlýsingarinnar hefði verið stofnaður starfshópur og nú væri verið að ráða tvo starfsmenn sem ættu að kortleggja landslagið.
Þá nefndi Katrín að á þriðjudag hefði ríkisstjórn samþykkt sérstakt jafnlaunaátak. Í því fælist endurmat á störfum til að jafna laun kynjanna. Katrín sagði að byrjað yrði á heilbirgðisstéttum en þar virtist munurinn vera mestur.