Búið er að telja 2.082 atkvæði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi og hefur engin breyting orðið á listanum. Ragnheiður Elín Árnadóttir leiðir listann og Unnur Brá Konráðsdóttir er í öðru sæti. Árni Johnsen, sem stefndi á fyrsta sætið er ekki meðal fimm efstu.
1. Ragnheiður Elín Árnadóttir - 1.391 atkvæði í 1. sæti
2. Unnur Brá Konráðsdóttir - 823 atkvæði í 1. – 2. sæti
3. Ásmundur Friðriksson - 799 atkvæði í 1. – 3. sæti
4. Vilhjálmur Árnason - 705 atkvæði í 1. – 4. sæti
5. Geir Jón Þórisson - 999 atkvæði í 1. – 5. sæti
Aðrir frambjóðendur hafa hlotið færri atkvæði.