Landspítalinn leitar eftir aðstoð

Farsóttir hafa sett strik í reikninginn á Landspítalanum.
Farsóttir hafa sett strik í reikninginn á Landspítalanum. Morgunblaðið/Golli

Landspítalinn hefur leitað eftir aðstoð nágrannasjúkrahúsa og óskað eftir því að þau taki að sér meðferð tiltekins fjölda sjúklinga til að létta álagið af spítalanum. 37 sjúklingar eru nú í einangrun á spítalanum.

Mjög mikið álag er á allri starfsemi spítalans vegna þessa og undanfarna daga hafa öll sjúkrarúm verið opnuð sem mögulega hefur verið hægt að koma fyrir og manna. Aðeins allra brýnustu starfsemi er sinnt að sinni meðan ástandið er svona og ýmsum valaðgerðum hefur verið frestað.

Viðbragðsstjórn Landspítalans hittist í hádeginu í dag til að fara yfir stöðuna og fram kemur í tilkynningu frá þeim að leitað hafi verið eftir aðstoð nágrannasjúkrahúsanna til að taka að sér sjúklinga. Leitað verður eftir samvinnu bæði sjúklinga og aðstandenda við að nýta þessi pláss. 

„Staðan í dag er enn óljós þar sem ekki liggur fyrir hversu margir sjúklingar útskrifast í dag. Því mun viðbragðsstjórn koma aftur saman nú síðdegis og endurmeta stöðuna,“ segir í tilkynningu. 

Viðbragðsstjórn segir að starfsfólk spítalans hafi staðið sig gríðarlega vel í að bregðast við þessum erfiðu aðstæðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert