Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segir að mestu máli skipti að beina allri umræðu varðandi Icesave-deiluna upp úr skotgröfunum og inn á yfirvegaðan farveg sem hafi illu ekki tekist árið 2009.
Þetta skrifar ráðherrann í pistli á bloggsíðu sinni. Hann vísar til umfjöllunar hæstaréttarlögmannsins Eiríks S. Svavarssonar sem var gestur í útvarpsþætti á Bylgjunni í morgun, en þar var fjallað um Icesave og væntanlegan úrskurð EFTA-dómstólsins.
„Hann greindi vel á hverju úrskurðurinn tekur, það er hvort Ísland hafi virt eða brotið tilskipun ESB um tryggingasjóð innistæðueigenda. Hann sagði réttilega að EFTA dómstóllinn væri ekki að kveða upp úr um greiðsluskyldu Íslands, gagnstætt því sem ýmsir virðast halda.
Það sem mestu máli skiptir nú er að beina allri umræðu upp úr skotgröfum og inn í yfirvegaðan farveg sem illu heilli ekki tókst sumarið 2009. Á þetta lagði Eiríkur S. Svavarsson áherslu og skal undir það tekið,“ skrifar Ögmundur Jónasson.