Hæstiréttur hefur komist að þeirri niðurstöðu að eignarhaldsfélaginu Gunnþóri sé heimilt með beinni aðfarargerð að fá tekinn úr umráðum Stracta Konstruktion ehf. hluta vinnubúða í Reyðarfirði.
Áður hafði Héraðsdómur Reykjaness hafnað kröfunni. Þá var greint frá því á mbl.is í desember sl. að stjórnendur Stracta Construction hygðust nota vinnubúðirnar til að byggja upp 80-100 manna hótel á 8-10 stöðum á landinu.
Nánar tiltekið sé annars vegar um að ræða svefnskála, merkta E-2-3-4-5-6, samtals um það bil 2.295 fermetrar með öllu sem í þeim er, þar á meðal sjónvörpum, stökum borðum og dívönum og hins vegar þrektækjasal sem er tvær einingar, merktur sem A7, samtals um það bil 72 fermetrar ásamt tækjum og öllu sem þar er inni. Vinnubúðirnar eru í heild um 30 þúsund fermetrar.
Hæstiréttur taldi að enginn vafi léki á því að Gunnþór hefði eignarrétt að vinnubúðunum en að auki hafði Stracta Construction ekki vísað til neinna gildra heimilda eða raka fyrir því að betri réttur félagsins stæði í vegi fyrir að Gunnþór fengi notið þessara eigna sinna.
Um er að ræða vinnubúðir á Hrauni í Reyðarfirði sem voru vistarverur starfsfólks við byggingu álvers Alcoa Fjarðaráls sf. í firðinum.