Gagnrýna hækkanir hins opinbera

Gjöld í leikskóla hækkuðu um áramótin.
Gjöld í leikskóla hækkuðu um áramótin. mbl.is/Árni Sæberg

ASÍ gagnrýnir auknar álögur ríkis og sveitarfélaga, en sambandið segir að auknar álögur á heimilin með hækkunum á gjaldskrám og neyslusköttum í upphafi árs hækkað verðlag í janúar um 0,4%.

„Þau skilaboð sem í þessu felast eru í algjörri andstöðu við þann samtakamátt um aðhald í verðlagsmálum sem lagt var upp með við endurskoðun kjarasamninga fyrr í mánuðinum. Opinberir aðilar ættu þar að ganga á undan með góðu fordæmi.

Hækkanirnar nú koma til viðbótar síendurteknum hækkunum á opinberum álögum sem valdið hafa aukinni verðbólgu síðustu ár og ASÍ fjallaði um í liðinni viku.
Mest áhrif nú hafa hækkanir á fasteignagjöldum sveitarfélaganna, þ.e. sorphirðugjöldum, holræsagjöldum og vatnsskatti. Flest sveitarfélög hækkuðu gjöld fyrir þessa þjónustu nú um áramót en skv. vísitölu neysluverðs hækkuðu þau í heildina um 7,3% og hafa 0,13% áhrif til hækkunar á verðlagi.

Opinberar álögur á tóbak hækkuðu um áramótin en þá hækkaði tóbaksgjald um 20%. Sú hækkun skilar sér í um 9% hækkun á útsöluverði tóbaks sem veldur 0,12% hækkun á verðlagi en í heildina hækkaði tóbak þó mun meira í janúar eða um tæp 18%.
Kostnaður barnafjölskyldna fyrir leikskóla og skóladagvist hækkar sömuleiðis og hefur áhrif á verðbólguna. Leikskólagjöld hækka um 5,1% og gæsla í grunnskólum um 4,3%, samanlagt hafa þessir liðir 0,05% áhrif til hækkunar á verðlagi.

Heilbrigðisþjónusta hækkaði skv. vísitölu neysluverðs um 2,7% í janúar og hefur það 0,06% til hækkunar á verðlagi. Þetta skýrist af almennum hækkunum á gjaldskrám heilbrigðisþjónustunnar um 5-7% um áramót, að heilsugæslunni undanskilinni.
Flest orkufyrirtæki hækkuðu gjaldskrá sína fyrir raforku og heitt vatn um áramót auk þess sem skattur á raforkusölu hækkaði þá úr 0,12 kr/kWst. í kr. 0,126 kr/KWst. Þetta skilar sér í 1,1% hækkun á rafmagni og hita í vísitölunni sem veldur um 0,03% hækkun á verðlagi,“ segir í frétt frá ASÍ.

ASÍ bendir á að 1. mars nk. taki gildi hækkun á vörugjöldum á sykraðar matvörur og mun sú hækkun að líkindum skila sér út í verðlag á vordögum. Erfitt er að áætla áhrif þeirra breytinga en skv. frumvarpinu sem samþykkt var í desember er talið að hækkunin muni leiða til 0,01% hækkunar á verðlagi. Þá hækkar virðisaukaskattur á gistiþjónustu þann 1. september nk. og er sömuleiðis gert ráð fyrir að sú hækkun leiði til 0,01% hækkunar á verðlagi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert