Samninganefndir hjúkrunarfræðinga og Landspítala sitja enn á fundi þar sem reynt er að komast að samkomulagi um endurnýjaða stofnanasamninga hjúkrunarfræðinga. Að sögn Björns Zoega forstjóra Landspítala hafa viðræður gengið vel í morgun og segist hann bjartsýnn um framhaldið.
Fundurinn hófst klukkan 10:30 í morgun. Elsa B. Friðfinnsdóttir formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga segir ljóst að aðilum beri mikið á milli í deilunni en í pistli sem birtist á vefsvæði félagsins í gær segir hún m.a. að til þess að jafna launamun milli hjúkrunarfræðinga og háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðsins þurfi 1,32 milljarða á ársgrundvelli.