Árgjöld ekki skyld í Samfylkingu

Frá landsfundi Samfylkingarinnar 2013.
Frá landsfundi Samfylkingarinnar 2013. mbl.is/Ingvar

Tillaga um að árgjöld verði gerð skyld í Samfylkingunni til að njóta félagslegra réttinda var kolfelld rétt í þessu.

Áður höfðu verið greidd atkvæði um hvort vísa ætti tillögunni til flokksstjórnar til meðferðar en sú tillaga var felld, en þó naumlega.

Það verður því áfram valkvæmt hvort félög innan Samfylkingar hafa félagsgjöld sem skyldu fyrir félagsaðild eða ekki, líkt og gert er í Reykjavíkurfélagi Samfylkingarinnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert