Lögreglan á Suðurnesjum var um helgina kvödd í Flugstöð Leifs Eiríkssonar vegna tveggja karlmanna sem voru með ólæti í vopnaleit.
Mennirnir, sem eru báðir um fertugt, ætluðu með flugi SAS til Ósló. Þeir voru undir áhrifum áfengis, en ekki áberandi ölvaðir. Við vopnaleitina höfðu þeir öskrað á fólk og verið með leiðindi.
Annar þeirra hafði að auki rifið í vélar og tæki og hrist til. Þegar lögregla kom á vettvang var sá síðarnefndi enn æstur og ósamvinnuþýður en hinn öllu rólegri.
Í samráði við flugstjóra vélarinnar varð niðurstaðan sú að sá rólegri fengi að fara með vélinni, en hinn færi ekki um borð.