„Þarna ætluðu stórveldi, nýlenduþjóðir, að kúga smáþjóð til uppgjafar. Láta smáþjóðina gefa upp fullveldisrétt sinn og komast síðan óhindrað inn í náttúruauðlindir okkar,“ sagði Vigdís Hauksdóttir, þingmaður og oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður, á flokksfundi Framsóknarflokksins í dag.
„Það leiðir hugann að því að það er mjög mikilvægt að fyrir næstu kosningar þá bindum við auðlindir þjóðarinnar í stjórnarskrá - til þess að tryggja að svona sjónarsvið fari ekki fram á nýjan leik,“ sagði Vigdís.
Hún segir að með svokölluðum Svavars-samningum hafi verið búið að afsala fullveldisrétti þjóðarinnar. „Það perluðu svitadropar af Indriða Þorlákssyni og Svavari Gestssyni þegar þeir komu á fund þingflokks framsóknarmanna og þeim varð það þá ljóst, að ég held í fyrsta sinn, hvaða verknað þeir höfðu framið,“ sagði Vigdís.
„Á þeim fjórum árum sem þessi vinstri stjórn hefur starfað hefði ég aldrei trúað því, nema sjá það sjálf, að okkur var boðið í „vinstri veröldina.“ Á fjórum árum ætluðu vinstri flokkarnir að breyta okkar ágæta samfélagi. Við sitjum uppi með rammaáætlun Vinstri grænna og Samfylkingarinnar. Það á að skrifa nýja stjórnarskrá sem er skilgetið afkvæmi stefnumála þessara stjórnmálaflokka. Þetta er stefnuyfirlýsing vinstri manna en ekki þjóðarsátt, ekki grunnsáttmáli þjóðarinnar sem við þurfum á að halda,“ sagði Vigdís.
Hún ræddi frumvarp til nýrra náttúruverndarlaga og sagði: „Við erum núna að fást við í þinginu náttúruverndarlög, sem eru náttúruverndarlög Vinstri grænna og Samfylkingarinnar. Þau eru svo íþyngjandi að inn á hálendið má nánast enginn koma nema fuglinn fljúgandi. Það er að styttast í kosningar. Við höfum þraukað í fjögur ár með því að veita þessari ríkisstjórn mikla og kröftuga viðspyrnu. Við höfum verið sökuð um ýmislegt en við höfum aldrei gefist upp. Við höfum verið sökuð um málþóf þegar við raunverulega í þingflokknum erum að reyna að bjarga því sem sem bjargað hefur verið í þessum málum.“
Vigdís ræddi um mikilvægi samstöðu framsóknarmanna og sagði: „Við vinnum best saman sem ein heild og við verðum að komast út úr því sem ég kalla þessa sýndarveröld - veröld vinstri flokkanna. Við þurfum að skapa hér veröld, veröld fyrir okkur öll, veröld þar sem samstaða ríkir. Þar sem mál eru afgreidd í sátt en ekki sundrung. Þar sem mál eru afgreidd í samráði, alvöru samráði en ekki gervisamráði. Ég trúi á Framsóknarflokkinn. Ég er stolt af því að vera framsóknarmaður. Flokkurinn okkar er að verða 100 ára og hefur aldrei skipt um nafn og kennitölu. Það er algjörlega frábært miðað við það sem við þekkjum af vinstri vængnum.“