Vaðlaheiðargöng eitt af lykilmannvirkjunum

Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvegaráðherra og formaður VG.
Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvegaráðherra og formaður VG. mbl.is/Ómar Óskarsson

Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra, segir í samtali við fréttavefinn Vikudag að Vaðlaheiðargöng eigi eftir að verða eitt af lykilmannvirkjum í íslenska samgöngukerfinu. „Þau eru á margan hátt í hliðstæðri stöðu og til dæmis Borgarfjarðarbrúin var á sínum tíma,“ er haft eftir ráðherranum.

„Svo ég tali nú ekki um hversu mikilvæg göngin verða þegar miklar framkvæmdir og fjárfestingar fara af stað í Þingeyjarsýslum. Þá verður ómetanlegt að hafa göngin,“ bætti Steingrímur við.

„Það er ástæða til að velta því fyrir sér hversu fast við virðumst sitja í þessum ógæfusporum. Þegar um er að ræða stór og mikilvæg framfaramál utan suðvesturhornsins eru þau oftar en ekki stimpluð sem byggða- og kjördæmapot. Það er sérstaklega dapurlegt,“ sagði hann ennfremur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert