Feneyjanefndin gerir margvíslegar athugasemdir við frumvarp að nýrri stjórnarskrá sem nú er til meðferðar á Alþingi. Í drögum að áliti nefndarinnar er bent á að ýmis ákvæði frumvarpsins séu flókin, meðal annars stofnanauppbygging og aðkoma almennings að ákvörðunum.
Feneyjanefndin segir að verði tillögurnar samþykktar sé hætta á pólitísku þrátefli og óstöðugleika sem geti valdið alvarlegum vandræðum við stjórn landsins.
Feneyjanefndin skilaði álinu til stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í gær, en verið er að þýða álitið.
Fjallað er ítarlega um álit Feneyjarnefndarinnar í þriðjudagsblaði Morgunblaðsins.